Dagblað

Tölublað

Dagblað - 01.02.1925, Blaðsíða 1

Dagblað - 01.02.1925, Blaðsíða 1
I3agblaö þetta, er núhefur göngu sína, er ekki neinn póli- tiskur uppvakningur. fað mun eigi fylgja neinum sérstökum sijórnmálaflokki að málum,held- ur telja það skyldu sina að fylgja réttu máli iafnan, hver sem í hlut á. Dagblaöiö verður aðal- íega sniðið handa Reykvikingum og mun þess vegna láta sig öll bæjarmál miklu skifta. Enda er fyllilega kominn tími til þess, að Reykvíkingar gefi sínum mál- um meiri gaum en verið hefir fram að þessu. Nægir í því efni að nefna sem dæmi, að fyrir 10 árum voru fjárlög ríkisius álíka há og fjárhagsáætlun bæj- arins er nú. Dagblaðið mun marka sér sina stefnu í málum bæjarins, án tillits til þess, sem nefnt er flokkaskifting i bæjar- sljórn. Um fram alt vill það kappkosta, að fræða lesendur sína um málin og vekja áhuga þeirra fyrir þeim. JL>agblaöiö ætlar enn- fremur að verða bezta fréltablað landsins og yfirleitt ætlar það sér að verða svo fjölbreytt að efni sem kostur er á og stærð þess leyfir. Og þótt það þjrki lítið vexti nú, þá mega menn vita fyrir víst, að það á fyrir sér að stækka er stundir líða. Eins og nafn blaðsins ber með sér, er því ætlað að koma út daglega. í*ó mun það fyrst um sinn taka sér einn hvíldardag í viku hverri og verður það mánu- dagur. Aðra daga verður það á ferðinni meðal bæjarbúa um og eftir hádegisbil. Verður það að eins selt í lausasölu og hafa söludrengir hver sitt afmarkaða svið í bænum. Þeir sem vilja fá blaðið reglulega heim til sín þurfa því ekki annað en biðja drengina að koma með það daglega i sama mund. Með því móti ætti flestir að geta fengið það svo snemma, að þeir geti lesið það í matmálstíma sinum. Sjómannadag’ur, Rómi dimmum rymur löngum Rán við strendur þessa lands; inst i fjörðum, yzt með töngum öldur stíga trölladanz. Kalt er undir Kólgu vöngum kell þar tíðum bjarta manns. Þegar saman rugla reitum risaveður og hríðarköst oft er ’ann napur upp’ í sveitum og átök Norðra- heldur föst. En verður þá ei veikum fleytum viðsjál leið um straumaröst? * Lífs og dauða mjótt er milli. Magnþrunginn er dökkur Hlér. En þó að löngum farið fylli formaðurinn stiltur er; hjartaprjði og handarsnilli liafa tíðum bjargað þér. Ekki befir þó ekkjum fækkað. Enn í liðið höggvast skörð. Og vitið, hafið hefir stækkað og liyljað dýpra sérhvern fjörð. íslenzk tár munu hafa hækkað lieimsins miklu landagjörð. Þeir, sem stríðið harðast lieyja, hljóta ott að falla í val, og enginn þekkir, satt að segja, sjódruknaðra manna tal. En gott er hraustri hetju að deyja, lietjufrægðA lifa skal. Sjómenn íslands! Út í löndum — eftir því sem ég hef’ frétt — og meðfram öllum íslandsströndum yðar dáð er metin rétt. íslandsfáni í yðar höndum aldrei fær neinn smánarblett. * Háan syngur Himinglæfa. Hærra ná þó bænirnar, héðan í dag er hvaðanæva hetjum fylgja út á mar: Fylgi yður guð og gæfa gegnum allar hætturnar, Á. Ö.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.